Fornleifauppgröftur á Höfða

Fornleifauppgröftur á fornum grafreit stendur yfir á Höfða á Höfðaströnd, í tengslum við Kirkjurannsókn Fornleifadeildar Byggðasafns Skagfirðinga. Markmið kirkjurannsóknarinnar er að finna og staðsetja forna kristna grafreiti í héraðinu og hefur staðið yfir síðastliðin fjögur ár.

Á Höfða á Höfðaströnd komu mannabein upp við framkvæmdir á 7. áratugnum og ákveðið var að rannsaka nánar svæðið þar sem beinin fundust. Þar kom í ljós gröf frá því um eða rétt fyrir 1300, í gröfinni hvíldi eldri kona. Gröfin hafði verið tekin í tvær eldri grafir, allt frá því á 11. öld.

Rannsóknarniðurstöður gefa til kynna að þétt hafi verið skipað í garðinn þegar á 13. öld og hann því líklega verið færður eftir það. Frekari niðurstöður úr beinagreiningum má vænta síðar. Nánari upplýsingar má sjá á vef Byggðasafns Skagfirðinga.

Fleiri fréttir