Frá æfingum til afkasta -Yfirferð þriggja ára háskólanáms í reiðmennsku-

Hestadagar í Skagafirði hófust í dag með opnu húsi á hrossaræktarbúinu að Varmalæk og eru allir velkomnir þangað. Á morgun munu  þriðja árs nemar í BS námi í reiðmennsku og reiðkennslu við Háskólann á Hólum vera með kennslusýningar um helstu verklega þætti námsins.

Sýningin mun innihalda þjálfun knapa og reiðhests frá æfingum til afkasta. Farið verður yfir sætisæfingar, yfirferðarþjálfun, frumtamningar, grunnþjálfun/gangsetningu, þjálfun hins alhliða gæðings o.fl. en auk þess verður fjallað um nýjungar námsins það er skeiðþjálfun og þjálfun kynbótahrossa.

Aðgangur ókeypis og allir velkomnir!

Fleiri fréttir