Frá Unglingaráði körfuknattleiksdeildar Tindastóls
Eftir mikla handavinnu tókst að setja saman æfingatöflu fyrir septembermánuð, eða þangað til íþróttahúsið opnar aftur eftir parketlögn. 9. flokkur og yngri æfa í barnaskólasalnum en 10. flokkur og eldri í Varmahlíð.
Æfingar hefjast samkvæmt töflunni fimmtudaginn 1. septemberað því undanskildu að stúlkur í 8. flokki byrja viku síðar, eða fimmtudaginn 8. september.
Á æfingatöflunni má sjá lista yfir þjálfarana í vetur en nokkrar breytingar verða í þjálfarateyminu þó að gamalkunn nöfn sjáist þar líka. Nýir þjálfarar hjá körfuknattleiksdeildinni eru Guðjón Örn Jóhannsson, sem þjálfar stúlkur í 7. flokki, Þröstur Leó Jóhannsson, sem þjálfar stráka í 3. - 4. bekk og Hreinn Gunnar Birgisson sem þjálfar stráka í 5. - 6. bekk. Guðjón kemur til starfa 15. september en þangað til mun Ásta Margrét Benediktsdóttir sjá um stelpurnar í 7. flokki.
Aðrir þjálfarar eru Helena Þórdís Svavarsdóttir sem verður með stúlkur í 3. - 5. bekk, Hrafnhildur Sonja Kristjánsdóttir sem þjálfar 8. flokk stúlkna, Karl Jónsson þjálfar 10. flokk og stúlknaflokk, Borce Ilievski þjálfar stráka í 8. flokki, sem eru 7. og 8. bekkur, auk þess sem hann þjálfar 9. flokk drengja og drengjaflokk. Kári Marísson sér svo um þjálfun 10. og 11. flokks drengja.
Fyrirkomulag míkróboltans, eða 1. - 2. bekks, verður nánar kynnt síðar, en sá aldurshópur byrjar á æfingum 1. október. Þá byrjar körfuboltaskólinn um leið og íþróttahúsið opnar, en það verður sömuleiðis tilkynnt síðar.
Eftirtaldir flokkar taka þátt í Íslandsmótinu í vetur:
8. flokkur drengja, 9. flokkur drengja, 10. flokkur drengja, 11. flokkur drengja og drengjaflokkur strákamegin en 7. flokkur, 8. flokkur og 10. flokkur stúlknamegin, en litlar líkur eru á því að stúlknaflokkur fari í Íslandsmótið að þessu sinni. Samtals eru þetta 8 flokkar sem er svipað og verið hefur undanfarin ár.
Yngri krakkarnir taka þátt í Króksamótinu í minnibolta sem haldið verður hér á Sauðárkróki laugardaginn 12. nóvember, Kjarnafæðismótinu á Akureyri í apríl, en á milli þeirra móta verður farið suður á eitt mót, en það verður nánar ákveðið í samvinnu við foreldra þegar að því kemur.
Nánari upplýsingar um búningamál, æfingagjöld og fleira í þeim dúr, verður dreift í september.
Þjálfarar þeirra flokka sem æfa í Varmahlíð halda utan um og skipuleggja ferðir þangað.
Æfingartöfluna má skoða hér