Frábær grannasigur Tindastólsstúlkna í síðasta leik vetrarins

Kvennalið Tindastól spilaði síðasta leik sinn í 1. deildinni um helgina og voru mótherjarnir Þórsarar frá Akureyri. Spilað var í Síkinu og var leikurinn æsispennandi en það voru heimastúlkur í Tindastóli sem voru sterkari á endasprettinum og unnu sætan sigur, 68-56.

Þórs-stúlkur byrjuðu betur og höfðu yfirhöndina fyrstu mínútur leiksins. Heimastúlkum gekk afleitlega að hitta í körfuna  en gestunum lítið skár og staðan 9-10 að loknum fyrsta leikhluta. Þegar fjórar mínútur voru liðnar af öðrum leikhluta var Þór yfir 14-19 en eftir það skelltu Stólur í lás og í hálfleik var staðan 26-20.

Lið Þórs var ekkert á þeim buxunum að gefast upp og söxuðu þær á forskot Tindastóls í þriðja leikhluta, staðan var 36-35 um miðjan leikhlutann en 42-39 þegar fjórði leikhluti hófst. Gestirnir minnkuðu muninn í eitt stig, 45-44, en þá kom góður kafli hjá Tindastólsstúlkum sem gerðu tólf stig á sama tíma og gestirnir gerðu eitt. Eftir þetta var sigurinn öruggur og mestur varð munurinn 18 stig, 68-50.

Stigahæst í liði Tindastóls var Bríet Lilja Sigurðardóttir með 22 stig og sjö fráköst en Tashawna Higgins átti flottan leik þó hún hafi oft skorað meira, Tas gerði 12 stig en tók 16 fráköst og átti 10 stoðsendingar. Þá voru Linda Róberts, Þóranna Sigurjóns og Ísabella Guðmunds drjúgar.

Lið Tindastóls hefur nú lokið keppni og hefur sannarlega staðið sig frábærlega í vetur. Stelpurnar unnu tíu leiki en töpuðu fjórum og sitja sem stendur í öðru sæti 1. deildar en liðin í fyrsta og öðru sæti spila um sæti í efstu deild. Lið Fjölnis er í þriðja sæti en það er næsta víst að þær muni tryggja sér annað sætið í deildinni en Fjölnir á eftir að spila þrjá leiki. Feykir óskar Tindastólsstúlkum til hamingju með árangurinn í 1. deildinni en langt er síðan Tindastóll var með lið í kvennadeildinni.

Stig Tindastóls: Bríet Lilja 22, Linda Þórdís 13, Tas 12, Þóranna Ósk 11, Ísabella 8 og Erna Rut 2.

Fleiri fréttir