Frábær sigur Stólanna í Ljónagryfju Njarðvíkinga
Tindastólsmenn gerðu góða ferð suður með sjó í gær en þangað heimsóttu þeir lið Njarðvíkur í Iceland Express-deildinni. Stólarnir höfðu yfirhöndina nánast allan leikinn þó sjaldan væri munurinn mikill og lönduðu sætum sigri, 85-93, og eru nú í 6. – 8. sæti í deildinni með 10 stig.
Helgi Rafn sagði eftir síðasta leik að næst ætluðu Stólarnir að hefja leik í fyrsta leikhluta í stað þess fjórða og vísaði til þess að lið Tindastóls virtist ekki taka við sér fyrr en í lokafjórðungi leikja. Hann stóð við stóru orðin því í gær voru það Tindastólsmenn sem byrjuðu vel, komust í 0-9 með körfum frá Allen og Luttman. Um miðjan leikhlutann var staðan 9-16 og næstu 9 stig Stólanna gerði Rikki með 3 3ja stiga skotum og staðan 14-25 en að loknum fyrsta fjórðungi var staðan 20-27. Annar leikhluti var jafnari en sá fyrri en Stólarnir náðu þó mest 13 stiga forystu og voru að hitta vel fyrir utan 3ja stiga línu; Rikki bætti við tveimur og Hreinsi og Þröstur settu sitt hvora. Staðan í hálfleik 41-49.
Njarðvíkingar voru þó ekki búnir að gefast upp frekar en við var að búast, skiptu úr svæðisvörn yfir í maður á mann vörn og minnkuðu muninn í þrjú stig í upphafi þriðja leikhluta. Þeir náðu síðan að jafna, 55-55, um miðjan leikhlutann og komust síðan yfir í fyrsta sinn í leiknum, 60-58. Nú var stál í stál og jafnt á flestum tölum en síðustu tvær körfur 3ja leikhluta gerðu Þröstur Leó og Allen og gáfu Stólunum smá forskot, 64-68.
Svabbi byrjaði fjórða leikhluta með glæsibrag og setti niður tvær 3ja stiga körfur, heimamenn minnkuðu muninn en Svabbi bætti við einni til viðbótar og staðan 71-78 þegar 6 mínútur voru til leiksloka. Það sem eftir lifði leiks náðu Njarðvíkingar aldrei að minnka muninn niður fyrir 6 stig og leikmenn Tindastóls sigldu heim með stigin 2, lokatölur 85-93.
Lið Tindastóls átti skínandi leik, sex leikmenn voru að skora yfir 10 stig og liðsheildin sjaldan verið sterkari. Nú hafa strákarnir snúið við ömurlegri byrjun á tímabilinu og unnið 5 af síðustu 6 leikjum, aðeins naumur sigur Snæfells í framlengingu sem skemmir statistikina. Næsti leikur Tindastóls er í Garðabænum 19. janúar en Stjörnumenn hafa farið frekar illa með Stólana í vetur – það væri ekki leiðinlegt að lagfæra það aðeins.
Tindastóll: Curtis Allen 21/8 fráköst, Friðrik Hreinsson 15, Svavar Atli Birgisson 13, Maurice Miller 11/5 fráköst/11 stoðsendingar, Þröstur Leó Jóhannsson 11/8 fráköst, Myles Luttman 11/9 fráköst, Helgi Freyr Margeirsson 5, Hreinn Gunnar Birgisson 4, Helgi Rafn Viggósson 2.