Frábær stemning á útgáfutónleikum Multi Musica
Útgáfutónleikar Multi Musica voru haldnir í Salnum í Kópavogi síðastliðið laugardagskvöld og þar mættu um 170 sprækir gestir. Tónleikarnir gengu frábærlega að sögn Ásdísar Guðmundsdóttur söngkonu og forsprakka Multi Musica og var mikil stemning frá fyrsta lagi. -Gestirnir skemmtu sér konunglega, og var stemningin svo mikil að í lokin voru allir staðnir upp og klöppuðu og dönsuðu með, segir Ásdís.
Fyrirhugað er að halda útgáfuteiti á Króknum en dagsetning er ekki komin á hreint ennþá en það mun verða haldið í hinu sögufræga húsi Gúttó. -Þar verður svona kósi, „unplugged“ stemning og allir Skagfirðingar eru hér með hvattir til að koma og gleðjast með okkur, segir Ásdís. -Fleiri tónleikar með þessari dagskrá eru fyrirhugaðir á næstunni en ekkert sem er komið á hreint enn þá. Þó má segja frá því að hugur okkar stefnir á að komast vestur á Ísafjörð með tónleika.
Verið er að skipuleggja nýja söngdagskrá sem verður með alþjóðlegum blæ, en lesendur fá að vita meira um það seinna að sögn Ásdísar en þeir sem vilja eignast nýja diskinn geta nálgast hann í Menningarmiðstöðinni Múltíkúltí á Barónsstíg, verslunum Eymundsson í Kringlu, Smáralind, Austurstræti, Skólavörðustíg, Akureyri og verður einnig til sölu í Eymundsson Ísafirði. Einnig í Skífunni Laugavegi og Kringlu, Veztfirsku verzluninni og svo Skagfirðingabúð. Þá má minna á síðuna á Facebook og heimasíðuna www.multimusica.is
-Að lokum vill Multi Musica þakkar öllum þeim sem mættu á tónleikana kærlega fyrir komuna, þetta voru flottir áheyrendur sem að gaman var að spila fyrir, segir Ásdís!