Frábær þátttaka á Jólamóti Molduxa

Skotfélagið stóð uppi sem sigurvegari í opnum flokki á Jólamóti Molduxa sem fram fór laugardaginn 27. desember sl. Á vef Molduxa segir að Skotfélagið hafi gert sér lítið fyrir og unnið alla sína leiki.

Alls tóku 20 lið þátt, 17 í opnum flokki, 2 í +35 og 1 í kvennaflokki. Leikið var í fjórum 5 liða riðlum þar sem flokkar +35, kvenna auk tveggja úr opna flokknum léku saman í D-riðli. Í heildina voru þetta 176 þátttakendur, á öllum aldursstigum, sá yngsti 12 ára en sá elsti 59 ára.

Meistaraflokkur Tindastóls í körfunni sá um dómgæslu og krakkar úr yngri flokkum sáu um ritaraborðin. Öll innkoma mótsins alls kr. 300.000,- rennur óskert til körfuboltadeildar Tindastóls.

Myndasyrpu frá mótinu má skoða á vef Molduxa.

Fleiri fréttir