Frábært Landsmót UMFÍ 50+

Fyrsta Landsmót UMFÍ 50+ var sett við Hvammsá á Hvammstanga í gærkvöldi. Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra, Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Skúli Þórðarson, sveitarstjóri í Húnaþingi vestra, og Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ, voru meðal þeirra sem fluttu stutt ávörp. Á þriðja hundrað keppendur eru skráðir til keppni og hófst keppnin í gær en mótinu lýkur á sunnudag.

Eftir setningu mótsins í gærkvöldi fór fram keppni í búrfjárdómum og var keppninni mjög skemmtileg og vakti mikla kátínu á meðal áhorfenda. Það fór svo að lokum að heimamanneskjan Elín Ása Ólafsdóttir hreppti fyrsta sætið, Helga Guðrún Guðjónsdóttir varð í öðru sæti og Guðbjartur Hannesson lenti í þriðja sæti.

Fjallaskokkið 2011 var þreytt í dag en hlaupið, sem fer fram árlega, var einn af dagskrárliðum Landsmóts UMFÍ 50+. Hlaupið er frá Grund í frá Grund í Vesturhópi yfir Vatnsnesfjallið og endað ofan í Kirkjuhvammi á Hvammstanga. Vegalengdin er um 12. km.

Gangan/skokkið/hlaupið er keppni þar sem gildir að vera fyrstur yfir fjallið en að sjálfsögðu getur hver og einn gert þetta eftir sínu höfði, keppt við aðra, sjálfan sig eða farið leiðina án þess að vera keppa yfirleitt. Aðalatriðið er að vera með og hafa ánægju af þessu.

Í hlaupinu í dag kom Reimar Marteinsson kaupfélagsstjóri KVH fyrstur í mark á 1:15,40 klst. Annar var Trausti Valdimarsson á 1:16,15 klst. og Ari Hermann Oddsson kom þriðji í mark á 1:23,17 klst. Fyrst kvenna í mark kom Sigrún Barkadóttir en alls tóku 30 manns þátt í hlaupinu.

Í kvöld klukkan 21.00 hefst skemmtidagskrá þar sem húnvetnskir stórsöngvarar munu þenja raddböndin, stiginn verður línudans og fleira skemmtilegt. Þá mun hljómsveitin Ðe Zetors leika létt lög fram eftir kvöldi.

Á morgun heldur dagskrá áfram fram til 15:30 en þá verða mótsslit. Dagskrána má nálgast HÉR.

Helga Hinriksdóttir var á mótssetningunni með myndavélina og sendi Feyki.

Fleiri fréttir