Fræðslu- og félagsmálastjóra vantar í Húnaþing vestra

Staða fræðslu- og félagsmálastjóra í Húnaþingi vestra er laus til umsóknar en leitað er að metnaðarfullum aðila til að sinna uppbyggingu á sameinaðri fræðslu- og félagsþjónustu sveitarfélagsins. Um er að ræða nýtt stjórnunarstarf í 100% stöðuhlutfalli.

Fræðslu- og félagsþjónusta Húnaþings vestra hefur á hendi öll mál er varða velferð einstaklinga og fjölskyldunnar og er eitt af meginmarkmiðum að þjónusta við börn verði heildstæðari og öll þjónusta verði undir sama sviði. Stefnt er að eflingu ráðgjafarþjónustu, stoðþjónustu og fræðslu til foreldra, aðstandenda og fagaðila.

Meginverkefni Fræðslu- og félagsþjónustu Húnaþings vestra eru; Félagsþjónusta, fræðslumál, sérfræðiþjónusta, málefni fatlaðra, barnavernd, forvarnarmál og jafnréttismál.

Umsóknarfrestur er til og með 5. ágúst. nk. en nánari upplýsingar um starfið veita Sigurður Þór Ágústsson, skólastjóri í síma 862-5466, Henrike Wappler, félagsmálastjóri í síma 455-2400 og Skúli Þórðarson, sveitarstjóri í síma 864-4806.

Fleiri fréttir