Framhaldsnámskeið í leðursaum

Í febrúar bíður FNV upp á framhaldsnámskeið í leðursaum þar sem nemendur læra m.a. sniðagerð, saumaskap og umhirðu á leðri og mokkaskinnum. Lögð er áhersla á að nemendur vinni sjálfstætt og útfæri eigin hugmyndir.  

Kennsla fer fram á saumastofu Loðskinns ehf á Sauðárkróki og stendur yfir 10.- 27. febrúar.

Kennt er  mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 17:00-21:00, Kennari er Anna Jóhannesdóttir. Skráningargjald er kr. 9.500. Efnisgjald ræðst af verkefnavali nemenda.

Nánari upplýsingar og skráning fer fram í síma 455-8000 og á skrifstofu skólans

Fleiri fréttir