Fréttir frá Félagi eldri borgara

Laugardaginn 24. september koma í heimsókn góðir gestir frá Ljóðahóp Gjábakka í Kópavogi. Þeir verða í Húsi frítímans kl. 16:00. Flutt verða frumsamin ljóð.  Leiðbeinandi verður Þórður Helgason Cand-mag. Allir eru velkomnir án endurgjalds.

 

Hópurinn hefur gefið út ljóðabækur sem verða til sölu á  kr. 500 eintakið ef einhvern langar til að kaupa.
Starf Félags eldri borgara í Skagafirði byrjar 3. október. Ýmislegt verður í boði.

/Fréttatilkynning

Fleiri fréttir