Sölvi og Skúli Björn kynna bækur sínar í Safnahúsinu í dag

Bókakápur höfundana tveggja.
Bókakápur höfundana tveggja.

Það var rithöfundakvöld í Safnahúsinu á Sauðárkróki síðastliðinn fimmtudag og það er ekki allt búið enn. Í dag klukkan 17 mæta nefnilega nokkuð góðir gestir á safnið og kynna nýútkomnar bækur sínar en það eru Króksarinn Sölvi Sveinsson og Héraðsbúinn Skúli Björn Gunnarsson. Fólk er að sjálfsögðu hvatt til að mæta í Safnahúsið, hlýða á kappana tvo og ræða málin.

Í tilkynningu á Facebook-síðu Héraðsskjalasafns Skagfirðinga segir: „Í bókinni Landslag kynslóðanna fléttar Skúli Björn minningum og sögum saman við örnefni og landslag til að koma vitneskjunni til næstu kynslóðar. Sölvi sem er margreyndur skólamaður fjallar vítt og breitt um skólamál í bók sinni Skólabók. Er leikur að læra? Hér veltir Sölvi fyrir sér ýmsum spurningum sem brenna á okkur öllum, t.d. hvað er góður skóli, hvað er menntun og ekki síst hvað er framundan?“

Skúli Björn á marga góða vini á besta aldri hér í Skagafirði en hann stundaði á sínum tíma nám við Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki (eins og hann hét þá) og starfaði á tímabili sem blaðamaður Dags í Skagafirði. Hann var lengi forstöðumaður Gunnarsseturs á Skriðuklaustri en lét af því starfi um síðustu áramót.

Fleiri fréttir