Fullur vilji til móttöku flóttafólks

Úr Skagafirði. Mynd: KSE
Úr Skagafirði. Mynd: KSE

Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar lýsti á fundi sínum í morgun fullum vilja sínum til að taka þátt í því mikilvæga og aðkallandi verkefni er viðkemur komu flóttamanna frá Sýrlandi til Íslands. „Byggðarráð skorar jafnframt á önnur sveitarfélög að gera slíkt hið sama,,“ segir í fundargerð.

Byggðarráð fól sveitarstjóra að setja sig í samband við fulltrúa velferðarráðuneytisins og fá nánari upplýsingar um verkefnið og kanna með hvaða hætti Sveitarfélagið Skagafjörður getur orðið að liði og kynna fyrir ráðinu á næsta fundi þess.

Fleiri fréttir