Fundur um fræðsluverkefnið Eflum byggð í dag

Fundur vegna áframhalds verður á vegum Farskólans á Hvammstanga í dag kl. 18 og eru allir áhugasamir hvattir til að mæta.

Samkvæmt vefsíðu Norðanáttar.is fer þar fram létt spjall um framhald Eflum byggð en fyrirætlað er að kenna m.a. bókhald og átthagafræði í samvinnu við Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra og Hólaskóla.

Þess má geta að námskeið verkefnisins Eflum byggð eru námsmönnum að kostnaðarlausu og eru nýir námsmenn boðnir velkomnir. Einnig er boðið upp á tíma hjá náms- og starfsráðgjafa fyrir námsmenn Eflum byggð, sem og aðra íbúa Húnaþings vestra, á meðan á fræðsluverkefninu stendur.

Fundurinn fer fram í fjarfundarstofu að Höfðabraut 6, á Hvammstanga en nánari upplýsingar veitir Helga Hinriks í síma 864 6014 eða netfanginu helgahi@farskolinn.is.

Fleiri fréttir