Fylkisstúlkur reyndust sterkari á fótboltasvellinu
Fótboltastelpur Tindastóls léku æfingaleik við Fylki fyrir sunnan sl. sunnudag og urðu að láta í minni pokann gegn þaulreyndu Pepsi Max liði heimastúlkna sem sigraði 5-1. Stólastúlkur sýndu ágæta takta í fyrri hálfleik en lið Fylkis var þó 2-1 yfir í hálfleik. Þær létu svo kné fylgja kviði í síðari hálfleik.
Skráðu þig inn til að lesa
Þú getur valið um þrjár áskriftarleiðir:
Leið 1 (blað og rafrænn aðgangur)
Færð blaðið inn um lúguna í hverri viku, rafrænan aðgang að pdf útgáfunni og að læstum fréttum inn á feykir.is.
Kostar 2.895 kr. á mánuði m/vsk (2.608 án/vsk).
Það eru alltaf fjögur blöð í mánaðaráskriftinni.
Leið 2 (rafrænn aðgangur að pdf útgáfu blaðsins)
Færð rafrænan aðgang að pdf útgáfunni að Feyki og að læstum fréttum inn á feykir.is.
Kostar 1.990 kr. á mánuði m/vsk. (1.793 kr. án/vsk).
Leið 3 (rafrænn aðgangur í viku)
Færð rafrænan aðgang að nýjasta tbl. Feykis og læstum fréttum í viku inn á feykir.is.
Kostar 555 kr. vikan m/vsk. (500 kr. án/vsk).
Fleiri fréttir
-
Allt frá sumarkaffi í Árskóla til súpermanna á hestbaki í Sæluvikunni
Sæluvikunni lýkur í dag þó svo enn eigi eftir að frumsýna Sæluvikustykki Leikfélags Sauðárkróks af ástæðum sem ættu nú að vera flestum kunnar. Einn stærsti viðburður Sælunnar var í gærkvöldi en þá fór Tekið til kostanna fram í Svaðastaðahöllinni þar sem frábær hross og knapar létu ljós sín skína.Meira -
Keppt í tölti og flugskeiði á lokamóti Meistaradeildar KS
Lokamót Meistaradeildar KS í hestaíþróttum var haldið sl. föstudagskvöld í boði Fóðurblöndunnar. Á þessu síðasta keppniskvöld deildarinnar var keppt í tölti og skeiði en kvöldið hófst á forkeppni í Tölti T1. Það voru þeir félagar, villiköttur Hrímnis-Hestkletts, Páll Bragi Hólmarsson og Vísir frá Kagaðarhóli, sem stóðu uppi sem sigurvegarar í tölti með einkunnina 8.83. Agnar Þór Magnússon og Stirnir frá Laugavöllum reyndust fremstir í flokk í flugskeiðinu.Meira -
Undirbúningur að uppsetningu á nýstárlegri gróðurstöð í Miðfirði í fullum gangi
Fulltrúar frá Skógarplöntum ehf. ásamt Magnúsi Barðdal verkefnastjóra frá SSNV vinna nú að uppsetningu á nýstárlegri gróðurstöð til framleiðslu á skógarplöntum í Miðfirði í Húnaþingi vestra. Sagt er frá því á FB síðu SSNV að í tengslum við verkefnið hafi hópurinn farið til Svíþjóðar og Hollands á dögunum til að kynna sér aðrar sambærilegar gróðurstöðvar og skoða búnað frá framleiðendum. Verkefnið hefur verið í undirbúningi í um tvö ár og standa vonir til að framkvæmdir hefjist á árinu.Meira -
Skatastaðavirkjun í Skagafirði | Steinar Skarphéðinsson skrifar
Skatastaðavirkjun er hugsuð til þess að virkja Austari Jökulsá í Skagafirði. Uppsett afl virkjunar er 156 MW, orkugeta 1090 GWh/ár. Til þess að svo megi verða þarf að skapa uppistöðulón á hálendinu í um 700 metra hæð yfir sjávarmáli. Þetta lón kæmi til með að verða um það bil 26,3 km2eða um það bil helmingi minna en Blöndulón. Öll aðrennslisgöng að og frá stöðvarhúsi eru fyrirhuguð neðanjarðar þannig að með góðum frágangi ættu ekki að verða mikil náttúruspjöll.Meira -
Nýframkvæmdir fyrir einn og hálfan milljarð á árinu
Feykir sendi Sigfúsi Inga Sigfússyni, sveitarstjóra Skagafjarðar, spurningar þar sem forvitnast er um nokkur helstu verkefni sveitarfélagsins og mál sem verið hafa í umræðunni, eins og byggingu menningarhúss á Sauðárkróki og íþróttahús við Grunnskólann austan Vatna. „Verkefnin eru mörg og margvísleg en framkvæmdir eru eitthvað sem flestir hafa áhuga á,“ segir Sigfús Ingi þegar hann er spurður út í helstu verkefni ársins hjá Skagafirði...Meira
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.