Fyllum Síkið í fjórða leik Tindastóls og KR í kvöld

Fjórði í úrslitaseríunni um Íslandsmeistaratitilinn er í Síkinu, Íþróttahúsinu Sauðárkróki, í kvöld og hefst að venju kl. 19:15. KR leiðir einvígið 2-1 en allt er opið enn. „Tindastólsstrákar ætla sér að mæta klárir í slaginn á miðvikudaginn og sigra KR-ingana til að kríja fram oddaleik í DHL-höllinni,“ segir á heimasíðu Tindastóls.

Í síðasta heimaleik voru um 900 áhorfendur og stemningin gjörsamlega trufluð og af slíkri upplifun má enginn missa.

Forsala aðgöngumiða hefst kl: 17:00 í íþróttahúsinu og húsið opnar kl: 18:00.

Fjölmennum í Síkið og styðjum okkar lið - Áfram Tindastóll!

Fleiri fréttir