Fyrirlestur um textíl

Þriðjudaginn 20. apríl kl. 12 mun Birna Kristjánsdóttir frá Háskólasetri Háskólans á Hólum á Blönduósi  flytja erindið „Textíll í víðum römmum“ í Þjóðminjasafni Íslands. Jafnframt verður Textílsetur Íslands á Blönduósi kynnt.

 
Titill erindisins er skírskotun til ferðalags, með það að markmiði að skoða textíl. Texti um textíl sem kallar fram fleiri spurningar en svör. Óljósar myndir textíltilveru  samtímans  eru dregnar upp, inn í ramma fagsviðs án landamæra.  Birna sinnir rannsóknum í textíl við Háskólasetrið á Blönduósi og kennir við ferðamáladeild Háskólans á Hólum.

Fleiri fréttir