Fyrsta ferð ferðafélagsins í sumar

Ferðafélag Skagfirðinga stendur fyrir fyrstu sinni í sumar á laugardaginn kemur. Farin verður gönguferð í Þórðarhöfða og sagðar sögur af því sem fyrir augu ber. Fararstjóri er Jóhanna Sveinbjörg Traustadóttir.

Sameinast verður í bíla frá Faxatorgi á Sauðárkróki kl. 10 og frá KS Hofsósi kl. 10:30. Ekið verður á Höfðamölina eins og hægt er að komast, en líklega er ekki hægt að komast á bílum alla leið þangað. Því má búast við að gangan, sem er hringinn um höfðann, taki um 4-6 tíma með öllu og gengnir verði rúmir 13 km. Hækkun er um 200 metrar.

Fleiri fréttir