Fyrsta meistaravörnin við ferðamáladeild

Á föstudaginn fór fram fyrsta meistaravörnin við ferðamáladeild Háskólans á Hólum. Það var Guðrún Ólafía Brynleifsdóttir, sem varði ritgerð sína, Leikið við ferðafólk - Upplifun á bak við tjöldin.

Meistaravörn hefst með opinni kynningu á verkefninu, og að henni lokinni geta almennir áheyrendur varpað fram spurningum. Síðan hefst sjálf vörnin, og þá kemur til kasta prófdómara og annarra prófnefndarmanna að kafa dýpra í verkið.

Prófdómari var Ragnheiður Skúladóttir, leikhússtjóri LA. Leiðbeinandi Guðrúnar Ólafíu var Guðrún Helgadóttir prófessor, en umsjónarkennarinn hennar, Guðrún Þóra Gunnarsdóttir lektor, tengdist vörninni frá Tromsö um fjarfundarbúnað

Athöfninni stjórnaði Ingibjörg Sigurðardóttir, lektor og fulltrúi ferðamáladeildar í framhaldsnámsnefnd. Að vörninni lokinni bauð deildin upp á glæsilegar veitingar Undir Byrðunni.

Fleiri fréttir