Fyrsta mót í Norðurlandsmótaröð barna- og unglinga í golfi er lokið

Fyrsta mótið í Norðurlandsmótaröð barna og unglinga var haldið á Dalvík sunnudaginn 26. júní. Golfklúbbur Sauðárkróks ( GSS ) var með 17 keppendur á mótinu sem er mjög glæsilegt og stóðu þau sig öll með mikilli prýði bæði utan vallar sem innan. Hluti keppenda hafði tekið þátt í golfævintýri sem haldið var dagana á undan hjá Dalvíkingum.

Nokkrir kylfingar GSS hlutu verðlaun á mótinu. Ingvi Þór Óskarsson varð í öðru sæti í flokki 17-18 ára eftir að hafa tapað bráðabana um 1. sætið. Þröstur Kárason tapaði síðan í bráðabana um 3. sætið í flokki 15-16 ára. Matthildur Kemp Guðnadóttir varð í 3. sæti í flokki 14 ára og yngri. William Þór Eðvarðsson sigraði síðan í flokki 12 ára og yngri. Þá varð Viktor Kárason í 2. sæti í byrjendaflokki. Pálmi Þórsson fékk síðan nándarverðlaun.

Næsta mót í mótaröðinni er síðan nk. sunnudag en það er Nýprent mótið sem að haldið verður á Hlíðarendavelli á Sauðárkróki.

Fleiri fréttir