Fyrsta opnun skíðasvæðis Tindastóls að baki
Fyrsti opnunardagur skíðasvæðis Tindastóls var um sl. helgi og að sögn Viggós Jónssonar staðarhaldara skíðasvæðisins voru aðstæður til skíða iðkunnar mjög góðar.
„Skíðasvæði í Tindastól var opnað á laugardaginn í alveg frábæru veðri þó svo það hafi verið nokkuð kalt um helgina þá er það nú eðli skíðasvæða ef svo má að orði komast að hafa kalt á skíðasvæðum en færið var gott rennslið gat varla orðið mikið betra,“ sagði Viggó.
Að sögn Viggós gerðu snjóvélarnar og snjógirðingar sem eru á skíðasvæðinu það kleift að opna um helgina. „Nú er grunnurinn kominn og um að gera að bæta ofan á þetta en sumstaðar í brekkunni er fremur þunnt lag og það þurfum við að laga en brekkurnar eiga bara eftir að lagast,“ bætti Viggó við.
Verið er að leggja göngubraut á skíðasvæðinu og er hún að mestu komin en samkvæmt Viggó var hún ekki lögð í fullri lengd um helgina því það vantaði svolítinn snjó upp á Þröskuldinn þar sem hún liggur.
Til stendur að opna skíðasvæðið á ný nk. laugardag, þann 10. desember. „Það á eftir að gera eitthvað skemmtilegt fyrir börnin, hólabrautir og einhverja útúrdúra en við verðum vonandi komnir með það um næstu helgi,“ sagði Viggó.
Þess má geta að miðarnir og kortin verða framvegis seld í skemmunni og einnig verður skíðaleigan þar. Foreldrafélagið mun hér eftir vera með kaffisöluna í skálanum. Áhugasömum er bent á vefmyndavél á heimasíðu Tindastóls þar sem hægt er að fylgjast með skíðasvæðinu.