Fyrsta söngferð ársins hjá Lóuþrælum
Karlakórinn Lóuþrælar í Vestur-Húnavatnssýslu hafa undanfarið undirbúið sig fyrir fyrstu söngferð ársins en í hana verður lagt frá Laugarbakka kl. 10:00 í fyrramálið og stefnan tekin á Tröllaskagann.
Á heimasíðu kórsins louthraelar.123.is verður fyrst haldið til Siglufjarðar þar sem tónleikar verða klukkan 15:00 og svo áfram í gegnum nýju fínu Héðinsfjarðargöngin að Dalvík en þar verður sungið klukkan 20:00. Með í för verða geilsadiskar sem kórinn hefur gefið út og verða þeir seldir gegn vægu gjaldi.
Á söngdagskránni eru um 20 lög úr ýmsum áttum og lagalistinn því nokkuð fjölbreyttur og má finna á honum m.a. einsöngslag.