Fyrsta tapið í Grafarvoginum í kvöld
Tindastólsmenn fengu skell í kvöld þegar þeir léku við lið Fjölnis í Grafarvogi og þar með var fyrsta tapið í 1. deildinni í vetur staðreynd. Leikurinn var í járnum fram að fjórða leikhluta en þá tættu heimamenn gestina í sig. Lokatölur 95-78.
Leikurinn var jafn í fyrsta leikhluta en þá var Helgi Rafn í miklum ham og gerði 11 af 19 stigum Stólanna sem voru yfir að leikhlutanum loknum, 17-19. Stólarnir voru skrefinu á undan heimamönnum framan af öðrum leikhluta en um hann miðjan náði Fjölnir góðum kafla og breyttu stöðunni úr 29-30 í 35-30 og þeir náðu að hanga á forystunni fram að hléi og voru yfir 38-34.
Fjölnir jók muninn í sjö stig í byrjun síðari hálfleiks en Helgi Rafn var ekkert á þeim buxunum að gefa þetta eftir baráttulaust og gerði næstu 5 stig. Proctor, sem oft hefur leikið betur, kom Tindastóli yfir 47-48 þegar tæpar fimm mínútur voru eftir af 3ja leikhluta. Næstu mínútur voru ágætar hjá Stólunum sem voru yfir, 53-56, þegar tvær og hálf voru eftir en þá fór allt í baklás og Fjölnir gerði sex síðustu stigin og voru yfir 59-56 fyrir síðasta fjórðung. Þar voru það heimamenn sem gengu á lagið og Emil Jóhannsson datt í mikið stuð og raðaði niður körfum. Stólarnir áttu engin svör og þegar fimm mínútur voru til leiksloka var munurinn orðinn 17 stig og til að gera langa og nöturlega sögu stutta þá sigraði Fjölnir með 17 stiga mun, 95-78.
Það má kannski segja Stólunum til afsökunar að þeir spiluðu erfiðan leik gegn ÍR í undanúrslitum bikarsins síðastliðinn mánudag. En 20 stiga tap gegn Fjölni á auðvitað ekki að vera í spilunum. Proctor var aðeins með 10 stig í kvöld og 4 fráköst. Helgi Rafn var hins vegar með 29 stig og 9 fráköst og var nánast eini maðurinn með lífsmarki. Flake var með 13 stig en Helgi Margeirs virðist hafa gleymt ferðafjölinni sinni heima í þetta skiptið. Það virtist draga máttinn úr Tindastólsmönnum að Proctor og Flake spiluðu ansi lengi með 4 villur á bakinu og Helgi Rafn með 3 en á endanum var það aðeins Flake sem fór út af með fimm þegar skammt var eftir. Fjölnismenn voru lengstum ekki í villuvandræðum en þegar 2-3 mínútur voru eftir fóru þeir þrír á bekkinn með 5 villur en þá var sigurinn í höfn.
Næsti leikur Tindastóls er hér heima að viku liðinni gegn Hvergerðingum í Hamri og þá er vonandi að strákarnir verði búnir að berja sig saman.
Stig Tindastóls: Helgi Rafn 29, Flake 13, Proctor 10, Pétur 8, Viðar 6, Ingvi Rafn 5, Helgi Margeirs 3 og Hannes 2.