Fyrsti áfangi tekinn formlega í notkun á þriðjudag

Frá hitaveituframkvæmdum í Miðfirði í október. Mynd: BÞ.
Frá hitaveituframkvæmdum í Miðfirði í október. Mynd: BÞ.

Í sumar og haust hafa staðið yfir miklar framkvæmdir hjá Hitaveitu Húnaþings vestra, í Miðfirði og Hrútafirði. Verklegum framkvæmdum hitaveitunnar er nú að mestu lokið og verður fyrsti áfangi tekinn formlega í notkun þriðjudaginn 15. desember nk. kl. 14:30.

Af því tilefni verður gestum og gangandi boðið að koma og fylgjast með í dæluhúsi Hitaveitu Húnaþings vestra á Laugarbakka. Sagt er frá þessu á vef Húnaþings vestra.

 

Fleiri fréttir