Fyrsti heimaleikur drengjaflokks á morgun

Drengjaflokkur Tindastóls í körfubolta spilar sinn fyrsta heimaleik á á morgun laugardag kl. 16.00 þegar Stjörnumenn koma í heimsókn. Strákarnir hafa byrjað vel, unnu tvo fyrstu leiki sína á útivöllum en nú þarf að reyna heimavöllinn.

 

Um daginn spiluðu strákarnir við Fjölni og Skallagrím á útivelli og unnust leikirnir báðir, Fjölnisleikurinn eftir framlengingu. Fín byrjun hjá strákunum sem þeir hyggjast nú fylgja eftir á heimavelli.

 

Bárður Eyþórsson mun stjórna strákunum í fyrsta skiptið eftir að hann tók við þjálfun liðsins.

 

Eins og áður segir hefst leikurinn kl. 16.00 á á morgun og er full ástæða til að hvetja fólk til að kíkja í Síkið og sjá þessa efnispilta sem þarna verða ferðinni.

Fleiri fréttir