Fyrsti sigur sameinaðra

Lið Tindastóls/Hvatar fékk Hafnfirðingana í ÍH í heimsókn á Sauðárkróksvöll í kvöld. Basl hafði verið á sameinaða liðinu fram til þessa í 2. deildinni, liðið hafði tapað fyrstu þremur leikjunum og óhætt að segja að lánið hafi ekki leikið við liðið, og loks urðu síðan vel kynnt þjálfaraskipti í vikunni. Það var því mikilvægt að liðið næði góðum úrslitum í kvöld og sú varð raunin, sanngjarn 2-1 sigur staðreynd.

Það var kalt á pöllunum framan af leik, hryssingsleg suðvestanátt með rigningarslettum. Engu að síður sýndi lið Tindastóls/Hvatar ágæta takta og náðu á köflum ágætu spili. Kolbeinn Kára var öflugur frammi og gekk varnarmönnum ÍH illa að ráða við kappann. Hann komst í nokkur hálffæri en braut ísinn þegar nokkuð var liðið á hálfleikinn, braust þá skemmtilega inn á vítateig ÍH og sendi hörkuskot í fjærhornið. Heimamenn voru mun sterkari í fyrri hálfleik og hefðu verðskuldað að ganga til búningsherbergja með meira forskot að fyrri hálfleik loknum en lið ÍH átti varla skot að marki.

Það lygndi í leikhléi og var leikið við fínar aðstæður í síðari hálfleik. Enn voru heimamenn sterkari og fengu nokkur ágæt færi sem fóru forgörðum. Kolbeinn bætti við öðru marki um miðjan hálfleikinn, fékk sendingu inn fyrir vörn ÍH og varð á undan markverði ÍH í boltann og sendann framhjá honum og í markið. Nú var þungu fargi létt af leikmönnum Tindastóls/Hvatar sem voru við það að innbyrða fyrsta sigur sumarsins. Drógu heimamenn sig nokkuð til baka eftir þetta og sóttu á skyndisóknum sem margar hverjar voru hættulegar. Gestirnir fengu hins vegar meira næði til að byggja upp sóknir en höfðu ekki erindi sem erfiði fyrr en í uppbótartíma. Þá komust þeir upp að endamörkum og sendu fyrir markið þar sem Örn Rúnar náði að setja fót í boltann. Gísli markvörður virtist vís með að verja skotið en boltinn gekk honum úr greipum og endaði í markinu. Þegar þarna var komið var skammt eftir af leiknum og náðu ÍH-ingar ekki að ógna marki heimamanna það sem eftir lifði. Lokatölur því 2-1 og þrjú stig komin í hús.

Lið Tindastóls/Hvatar átti fínan leik í kvöld, leikmenn spiluðu ágætan fótbolta, börðust vel og liðið gaf fá færi á sér. Vörnin steig varla feilspor og á miðjunni átti Atli flottan leik. Kolbeinn var góður frammi, sterkur og kraftmikill og nýtti færi sín vel. Donni getur verið sáttur við fyrsta leikinn undir sinni stjórn.

Fleiri fréttir