Fyrstu gestir Landsmótsins mættir

Fólk er tekið að streyma á Vindheimamelana og hefur komið sér fyrir í hjól- og fellihýsum en fyrstu gestir komu á þriðjudagskvöldið. Svæðið er þegar tilbúið til að taka á móti tjaldbúum bæði með rafmagn og vatn. Að sögn Eymundar Þórarinssonar framkvæmdastjóra Gullhyls stefnir í stærsta Landsmót frá upphafi hrossalega séð þar sem aldrei fleiri hross hafa verið skráð.

-Sem dæmi eru á annað hundarð hross skráð í B-flokki svo verða rosalega sterk hross sem eiga eftir að mæta hingað þannig að það lítur út fyrir að þetta verði líka sterkasta mót sem hefur verið haldið.

Eymundur er viss um að veðrið eigi eftir að verða dásamlegt eins og alltaf þegar Landsmót eru haldin á Vindheimamelum en þó er það eina breytan í undirbúningnum sem ekki er hægt að ráða við, allt annað er 100% klárt. –Við búum þó við það að vera á Íslandi og eigum á öllu von eins og dæmin sanna.

-Aðsóknin virðist ætla að verða góð en öll húsbíla og hjólhýsastæði eru frátekin og við erum búin að gera svæðið það vel úr garði að við getum tekið á móti 12-15 þúsund manns ef því er að skipta en við teljum það gott ef við fáum 6-9 þúsund gesti á svæðið.

Vellirnir eru klárir og hafa knapar verið að reyna gæðinga sína á æfingum síðustu daga og eru sáttir við allar aðstæður. Nú er verið að leggja lokahönd á tæknimálin, koma upp skjáum og hljóðkerfi, farsíma og tölvusambandi og verður það all klárt þegar mót hefst á sunnudag.

Fleiri fréttir