Ríflega 40 kylfingar tóku þátt í KS mótinu, sem haldið var á laugardag og er fyrsta mót tímabilsins. Völlurinn var í góðu standi og flatirnar að koma til en hvass vestanvindur gerði mönnum lífið leitt. Sigurvegar á þessu móti, sem var með Texas scramble fyrirkomulagi voru þeir feðgar Ólafur Þorbergsson og Arnar Ólafsson.
Þröstur Friðfinnsson og Atli Marteinsson urðu í öðru sæti og vallarstarfsmennirnir Guðmundur Þór og Ingvi urðu í þriðja sæti.
Fyrsta mótið í Norðurlandsmótaröð lágforgjafarkylfinga var svo haldið á Hlíðarendavelli sunnudaginn 5.júní. Veðurguðirnir voru kylfingum ekki hagstæðir, slagveðursrigning var lengst af og því erfitt að hemja boltann.
Mótið er það fyrsta af nokkrum sem haldin verða víðs vegar á Norðurlandi í sumar. Að þessu sinni voru einungis keppendur í karlaflokki.
Úrslit urðu sem hér segir:
Meistaflokkur:
1. Konráð V. Þorsteinsson GA
2. Ólafur Gylfason GA
3. Örvar Samúelsson GA
1.flokkur:
1. Arnar Geir Hjartarson GSS
2. Ingvi Þór Óskarsson GSS
3. Örn Viðar Arnarson GA