Gæðingamót á Sauðárkróki
feykir.is
Skagafjörður, Hestar
25.08.2015
kl. 13.03
Gæðingamót verður haldið laugardaginn 29. ágúst næstkomandi á Sauðárkróki. Að mótinu standa keppnisnefndir hestamannafélaganna í Skagafirði og hestaíþróttaráð UMSS.
Á vef hestamannafélagins Stíganda kemur fram að keppt verður á beinni braut, tveir til þrír saman í holli.
- A-flokkur (tölt, brokk, skeið)
- B-flokkur (hægt tölt, brokk, yfirferðartölt)
- Áhugamannaflokkur ( hægt tölt, brokk, yfirferð á brokki, tölti, skeiði eða stökki)
- Unglingaflokkur 17 ára og yngri (hægt tölt, brokk, yfirferðartölt)
- 100m skeið
Skráning er hjá byrgisskard@hotmail.com og lýkur á miðnætti miðvikudaginn 26. ágúst. Skráningargjöld eru 2000 krónur hver skráning og greiðist inn á 1125-26-001290 kt. 670269-0359.