Gæran 2013 haldin helgina 16. - 17. ágúst

Tónlistarhátíðin Gæran 2013 verður haldin helgina 16. og 17. ágúst nk. Dagsetningin var tilkynnt á dögunum og því er öllum óhætt að merkja umrædda helgi inn á dagatalið sitt og byrja að telja niður. Litlu munaði að hátíðin yrði að engu að sögn Sigurlaugar Vordísar Eysteinsdóttur, Gæruliða og annars skipuleggjanda tónlistarhátíðarinnar, en svo var ákveðið að slá til og halda fjórðu Gæruna.

Fólk á öllum aldri nutu tónlistarinnar sem hátíðina hafði upp á að bjóða í Gærunni sumarið 2011.

Gæruliðar þetta árið er sem fyrr Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir og nú hefur Húnvetningurinn Laufey Kristín Skúladóttir frá Tannstaðabakka í Hrútafirði, nú búsett á Sauðárkróki, gengið í raðir Gæruliða og sjá þær stöllurnar í sameiningu um að setja saman tónlistarveisluna í ár.

Spjallað verður við Sigurlaugu í Feyki sem kemur út á morgun en þar segir hún frá því hvers vegna minnstu munaði að Gæran yrði ekki haldin, hvernig skipulagningin gengur og fleira.

 

Fleiri fréttir