Gæran hefst með trúbadorkvöldi á Mælifelli í kvöld
http://www.youtube.com/watch?feature=player_embedded&v=UAVTyRs5HJ8
Tónlistarhátíðin Gæran hefst í kvöld með trúbadorkvöldi á Mælifelli en þessi upphitun fyrir aðal hátíðina er öllum opin og því ekki tekinn aðgangseyrir. Það er því um að gera að skella sér á staðinn, dilla sér örlítið og njóta góðrar tónlistar í boði ungs og hæfileikaríks skagfirsks tónlistarfólks.