Gærurnar láta gott af sér leiða
Gærurnar svokölluðu, sem sjá um Nytjamarkaðinn á Hvammstanga, gáfu í síðustu viku Félagi Eldri borgara á Hvammstanga 6 púttkylfur en eins og flestir vita fer ágóði sölu Nytjamarkaðarins í góðgerðamál í héraðinu. Þótti Gærunum tilvalið að gefa púttkylfur þar sem nýr púttvöllur er við Heilsugæslustöðina en hann var útbúinn af tilefni Landsmóts UMFÍ 50+ í sumar. Kylfurnar verða geymdar í sameiginlegu rými í Nestúni en allir félagsmenn hafa að sjálfsögðu aðgang að þeim.
Vel hefur gengið á Nytjamarkaðinum í sumar en var hann staðsettur á nýjum stað, við höfnina á Hvammstanga. Þótti sú staðsetning alls ekki síðri en sú í gamla gærukjallara KVH en þangað hefur Selasetrið flutt starfsemi sína.
Á meðfylgjandi mynd, frá vinstri: Fyrir hönd Gæranna, Árborg Ragnarsdóttir og Ása Ólafsdóttir og fyrir hönd Félags eldri borgara eru Sigurbjörg María Guðmannsdóttir og Elínborg Ólafsdóttir.