Gaf landsvölu sem var fönguð í Árskóla árið 1973

Óskar Björnsson skólastjóri Árskóla veitir gjöfinni, uppstoppuðum landsvölu og tildru, frá Ingólfi Sveinssyni viðtöku. Ljósm./arskoli.is
Óskar Björnsson skólastjóri Árskóla veitir gjöfinni, uppstoppuðum landsvölu og tildru, frá Ingólfi Sveinssyni viðtöku. Ljósm./arskoli.is

Árskóli á Sauðárkróki var afhent flotta gjöf í dag þegar Ingólfur Sveinsson kom færandi hendi og gaf Árskóla tvo uppstoppaða fugla, landsvölu og tildru. „Það er gaman að segja frá því að landsvalan sem er sjaldgæfur fugl á Íslandi, fannst í skólahúsi Árskóla við Skagfirðingabraut haustið 1973 þegar hluti hússins var enn í byggingu. Fuglinn, sem átti enga möguleika á að lifa hér á landi, flaug inn í hálfbyggt húsið. Hann var fangaður og settur í búr, en lifði aðeins tvo daga, “ segir á vef Árskóla 

Landsvala lifir á skordýrum sem hún tekur á flugi. „Við færum Ingólfi bestu þakkir fyrir gjöfina,“ segir loks í frétt Árskóla. 

Fleiri fréttir