Galli í gjöf Verslunarmannafélagsins

Flott gjöf Verslunarmannafélagsins til félagsmanna sinna, hleðslusett fyrir síma. Aðsend mynd.
Flott gjöf Verslunarmannafélagsins til félagsmanna sinna, hleðslusett fyrir síma. Aðsend mynd.

Verslunarmannafélag Skagafjarðar sendi félagsmönnum sínum gjöf í tilefni af 60 ára afmæli félagsins núna á dögunum. Um er að ræða hleðslusett fyrir síma sem inniheldur rafmagnskló, snúru, bílahleðslu og hleðslubanka. Félagið hefur fengið tilkynningar um einhver tilfelli þar sem rafmagnsklóin virðist ofhitna og nánast bráðna.

Hér má sjá afleiðingar ofhitunar á hleðslutækinu. Aðsend mynd.

Hér má sjá afleiðingar ofhitunar á hleðslutækinu. Aðsend mynd.

 Önnur hleðsla eins og t.d. bílhleðslan og þegar hleðslubankinn er hlaðinn í gegnum tölvu eða með bílhleðslu virðist vera allt í lagi. „Í flestum tilfellum virðist þetta þó vera allt í lagi,“ segir Hjörtur Geirmundsson, formaður félagsins. 
„Við viljum hins vegar benda fólki að hafa varan á og nota ekki hleðsluna með rafmagnsklónni meðan verið er að skoða málið með söluaðila og fá lausn á því.

Þar sem þetta hefur komið upp hefur verið prófað að nota aðra rafmagnskló t.d. þær sem fylgja flestum símum og þá hefur allt verið eðlilegt,“ segir Hjörtur og vill benda fólki á að ef hleðslubankinn hafi skemmst við þetta þá er hægt að nálgast nýjan á skrifstofu félagins á Borgarmýri 1 á Sauðárkróki.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir