„Gaman væri ef við náum að stofna klúbb sem bætir og kætir líf okkar og annarra í leiðinni“
Undirbúningsfundur fyrir stofnun Kvennaklúbbs Kiwanis í Skagafirði verður haldinn á Gott í gogginn á Sauðárkróki í dag kl. 17:00. „Áhugi hefur vaknað til að stofna Kvennaklúbb Kiwanis hér í Skagafirði. Það eru einungis fjórir Kiwanis kvennaklúbbar starfandi á Íslandi og einn í Færeyjum. Ísland-Færeyjar er sama umdæmið,“ útskýrir Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir í samtali við Feyki.
„Í dag er semsagt fundur með þeim konum sem hefðu áhuga á að vera memm og svo getum við stofnað kvennaklúbbinn þegar við erum orðnar 15,“ segir Sigurlaug ennfremur.
Kiwanis er alþjóðleg þjónustuhreyfing manna og kvenna, sem hafa áhuga á að taka virkan þátt í að bæta samfélagið, og láta gott af sér leiða. Í samstarfi fá þessir aðilar áorkað því sem einstaklingar geta ekki einir.
Áherslan er á „Serving the children of the world“ eða „Börnin fyrst og fremst“. Sem fyrr segir verður kynningarfundur haldinn í kvöld, miðvikudaginn 13. apríl kl 17:00 í Gott í Gogginn. „Gaman væri ef við náum að stofna klúbb sem bætir og kætir líf okkar og annarra í leiðinni,“ segir Sigurlaug að endingu.