Gamla Árvistarhúsið við Freyjugötu til sölu

Freyjugata 25, gamla Árvistin. Mynd/skagafjordur.is.
Freyjugata 25, gamla Árvistin. Mynd/skagafjordur.is.

Gamla Árvistarhúsið við Freyjugötu á Sauðárkróki verður sett á sölu. Á fundi byggðarráðs, sem haldinn var í morgun, var ákveðið að auglýsa og óska eftir tilboðum í húsið. 

„Byggðarráð samþykkir að fasteignin Freyjugata 25, dagvistarhús, auðkennisnúmer 226-8922, fastanúmer 213-1566, verði auglýst til sölu og flutnings af lóðinni. Sveitarstjóra falið að auglýsa fasteignina og óska eftir tilboðum,“ segir í bókun byggðarráðs. 

Fleiri fréttir