Geisladiskur frá Multi Musica
Í júní kemur út geisladiskur Multi Musica sem inniheldur 13 lög frá 11 löndum - Mexíkó, Sílé, Brasilíu, Kúbu, Suður-Afríku, Keníu, Rúmeníu, Spáni, Grikklandi, Indlandi og Íslandi.
Multi Musica hópinn skipar tónlistarfólk úr Skagafirði en hópurinn byrjað að starfa saman árið 2009. Haldnir voru tónleikar í Miðgarði þar sem dagskrá með lögum þessum var flutt í samstarfi við Rauða Kross Íslands, Unifem og Félag kvenna af erlendum uppruna. Eftir tónleikana var ákveðið að taka lögin upp á geisladisk í samvinnu við Vini Kenía og Soroptimistaklúbb Skagafjarðar en hluti af ágóða disksins rennur til góðgerðarverkefna á vegum Vina Kenía.
Multi Musica skipa
- Ásdís Guðmundsdóttir, söngur, ásláttur
- Íris Baldvinsdóttir, bakraddir
- Jóhanna Óskarsdóttir, bakraddir
- Jóhann Friðriksson, ásláttur
- Margeir Friðriksson, bassi
- Ólöf Ólafsdóttir, bakraddir
- Rögnvaldur Valbergson, píanó, hljómborð, gítar, harmonikka
- Sorin Lazar, gítar
- Sveinn Sigurbjörnsson
Útgáfutónleikar eru fyrirhugaðir í haust en nánari upplýsingar má finna á facebook síðu Multi Musica http://www.facebook.com/pages/Multi-Musica/184361114922276