Geitur gerðu víðreist
Tvær geitur ásamt þremur kiðlingum, í eigu Guðrúnar Þórunnar Ágústsdóttur á Háleggsstöðum í Deildardal, brugðu undir sig betri fætinum og fóru alla leið yfir í Kolbeinsdal.
Geiturnar voru vanar að halda til neðst í Deildardal en hafa líklega lagt í langferðina í haust og orðið þar fyrir einhverri styggð. Það var Sigurður Sigurðsson sem rakst á þær í vélsleðaferð um Kolbeinsdal á dögunum.
Eitt kiðið hafði skilað sér heim að bæ þegar í október, birtist í fjallinu og þá hljóp 12 ára sonur Guðrúnar og náði í það. Vegna hálku þurfti hann að bera kiðið á bakinu hluta leiðarinnar. Geiturnar voru nokkuð illa farnar, orðnar sárfættar og eins var hafurinn bólginn umhverfið augað, líkt og hann hefði rekið sig á eitthvað.
Frá þessu er sagt í Morgunblaðinu í gær.