Gersemar og gleðigjafar í Minjahúsinu

Síðastliðinn föstudag opnaði í Minjahúsinu á Sauðárkróki nýjar sýningar þar sem þrír skagfirskir listamenn sem enn hafa áhrif á samtíð okkar þótt gengin séu eru gerð góð skil. Þetta eru þau Guðrún frá Lundi sem skrifaði ófáar bækurnar á fullorðinsárum og urðu geysivinsælar, Eyþór Stefánsson tónskáld sem var öflugur í menninga og listalífi Skagfirðinga, og Jóhannes Geir listmálari en hann var í hópi vinsælustu listmálara Íslands frá því um 1960 til dánardags 2003.

Í minjahúsinu er einnig hægt að ferðast aftur í tímann og sjá gömlu verkstæðin sem hafa vakið mikla athygli gesta og hinn margfrægi Þverárfjalls-hvítabjörn tekur á móti ferðalöngum. Í húsinu er einnig geymslusýning þar sem lagðir eru fram merkilegir munir úr eigu safnsins.

Sýningarnar og upplýsingaverið í húsinu verða opin í sumar milli klukkan 13 og 21 alla daga vikunnar.

Fleiri fréttir