Getspakur Feykir fékk 10.000 krónur og morgunverðarsett

Ómar Feykir Sveinsson sigraði í jólagetraun Landsbankans á Sauðárkróki 2011. Getraunin fór fram í opnu húsi hjá Landsbankanum þann 26. nóvember sl. þegar kveikt var á jólatrénu á Kirkjutorgi.

 

Alls  tóku 184 manns þátt í getrauninni sem gekk út á að giska á peningaupphæð í krukku og giskaði Ómar Feykir á kr. 384.000 en rétt upphæð var kr. 379.714. Verðlaunin voru kr. 10.000 á gjafakorti og morgunverðarsett.

Á meðfylgjandi mynd er sigurvegarinn að taka við verðlaunum úr hendi Birgis R. Rafnssonar, útibússtjóra.

Fleiri fréttir