Gísli tryggði sameinuðum sigurinn
Tindastóll/Hvöt fékk lið Árborgar í heimsókn á Blönduósvöll í gærkvöldi. Leikurinn var nokkuð jafn en það reyndist vera markamaskínan Gísli Eyland Sveinsson sem tryggði sigur sameinaðra með marki úr vítaspyrnu á 35. mínútu. Fyrir vikið er lið Tindastóls/Hvatar nú í 9. sæti í 2. deild með 10 stig eftir átta leiki en þrjú lið eru fyrir neðan okkar menn, enda 12 lið í deildinni.
Lið Tindastóls/Hvatar varð fyrir þeirri blóðtöku í vikunni að önnur helsta markamaskína liðsins, Kolbeinn Kárason lánsmaður frá Val Reykjavík, var kallaður heim úr láni þar sem meiðsli herja á framherja úrvalsdeildarliðsins.