Gjaldskrárhækkun hjá Brunavörnum Skagafjarðar

Frá hópslysaæfingu í Skagafirði árið 2012.
Frá hópslysaæfingu í Skagafirði árið 2012.

Hækkun gjaldskrár hjá Brunavörnum Skagafjarðar fyrir árið 2016 var tekið til umræðu á fundi Umhverfis- og samgöngunefndar sl. föstudag. Í fundargerð segir að ekki verður hjá komið hækkun á útseldri vinnu og leigu tækja vegna mikilla launahækkana á árinu.

„Gjaldskrá Brunavarna Skagafjarðar mun ekki breytast hvað varðar efni frá byrgjum. Ekki verður hjá því komist að hækka útselda vinnu og leigu tækja um 9,2% vegna afar mikilla launahækkana á árinu. Gjaldskráin nær yfir útselda vinnu, leigu tækja í sérstök verkefni og slökkvitækjaþjónustu.

Lagt er til að gjaldskrá Brunavarna Skagafjarðar fyrir útselda vinnu ásamt tækjaleigu hækki um 9,2% Gjaldskrá vegna slökkvitækjaþjónustu önnur en þeir liðir sem innihalda vinnu munu ekki hækka. Þeir liðir gjaldskrár slökkvitækjaþjónustu sem innifela vinnu þurfa að hækka um 9,2%,“ segir í fundargerð.

Nefndin samþykkti beiðni Brunavarna Skagafjarðar um gjaldskrárbreytingu og vísaði henni til Byggðarráðs.

Fleiri fréttir