Glæný verslun á Hvammstanga

Ægissíða/Mynd: Facebooksíða Ægissíðu
Ægissíða/Mynd: Facebooksíða Ægissíðu

Ný verslun opnaði á Hvammstanga þann 21. júlí og ber hún heitið Ægissíða. Verslunin er til húsa á hafnarsvæðinu en það eru bræðurnir Magnús Atli og Hannes Þór Péturssynir sem reka verslunina.

Á nordanatt.is segir hugmyndin hafi kviknað er Magnús fór að hugsa um hvað hægt væri að gera til að auka þjónustuna við ferðamenn í sveitarfélaginu. Hann hafi svo rætt þetta við Hannes og þá hafi boltinn farið að rúlla. Eins og fyrr segir opnaði verslunin 21. júlí síðastliðinn og samkvæmt bræðrunum hafa viðtökur verið mjög góðar.

Verslunin selur fatnað frá Icewear, minjagripi og muni úr heimahéraði, s.s. hauskúpur frá Natural Bones Design, kanínuskinn frá Kanínu ehf., lopapeysur og fleira.

Verzlunin Ægissíða er opin alla daga í sumar milli kl. 10:00 og 17:00.

Fleiri fréttir