Glæsileg enduro- keppni í Tindastól
Í gær fór fram keppni 5. og 6. umferðar í Enduro á skíðasvæði Tindastóls og voru skráðir alls 65 keppendur til leiks. Mótið tókst vel þrátt fyrir mikla rigningu síðustu 2 daga sem gerir brautarskilyrði erfiðari. Vélhjólaklúbburinn hefur á að skipa góðu og öflugu starfsfólki og að sögn Helgu Eyjólfsdóttur stjórnarmanns klúbbsins hafa þau verið mjög heppinn að fá Einar Sverrir Sigurðason margfaldan Íslandsmeistara í motocrossi og enduro sem keppnisstjóra hjá þeim en það skiptir miklu máli að hafa slíkan reynslubolta, segir Helga.
Tveir heimamenn tóku þátt í keppninni og voru það þeir Hákon Sveinbjörnsson og Hjörleifur Björnsson en flokkurinn sem þeir tóku þátt í kallast Tvímenningur og gekk þeim ágætlega.
-Viljum við nota tækifærið og þakka Viggó Jónssyni og öllu hans fólki í Skíðadeildinni fyrir allan þann stuðning sem þeir hafa sýnt okkur. Skíðasvæðið er algjör paradís fyrir endurosvæði og eru keppendur gríðalega spenntir fyrir að taka þátt vegna góðra aðstæðna, segir Helga. -Kári Jónsson Íslandsmeistari 2010 innsiglaði Íslandsmeistaratitilinn sinn enn og aftur enda mjög flottur og góður ökumaður. Eyþór Reynisson er aftur á móti einn flottasti ökumaðurinn á þessu ári og er hann að landa þremur Íslandsmeistaratitlum þetta árið í mx open og mx2 og svo núna í enduro í Enduro CC-2. Eyþór er aðeins 18 ára gamall og hefur hér með brotið blað í sögu motocross og enduro.
Úrslit mótsins má finna á vef MSÍ
HÉR er hægt að nálgast skemmtilegar myndir frá mótinu.