Glæsilegur sigur á KA
Stelpurnar í fjórða flokki Tindastóls í knattspyrnu gerðu sér lítið fyrir í gær og sigruðu lið KA með þremur mörkum gegn einu marka KA stúlkna. Mörk okkar stúlkna skoruðu þær Hugrún Pálsdóttir sem var með tvö og Kolbrún Hjaltadóttir sem var með eitt.
Það var ljóst frá upphafi leiks hvað okkar stelpur ætluðu sér og sóttu þær fast að andstæðingum sínum frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu og komu þær KA stelpum illilega á óvart með baráttu sinni og það hversu góðar þær eru.
Þetta var þriðji leikur okkar stúlkna í Íslandsmótinu og eru þær því á toppnum í sínum riðli án taps. Næsti leikur okkar stelpna og síðasti heimaleikur þeirra í sumar er á móti Fjarðabyggð á sunnudag.