Glæsilegur sigur Jóhanns Björns

Jóhann Björn Sigurbjörnsson sigraði í 60 m hlaupi á alþjóðamótinu Reykjavik International Games, sem fram fór í Laugardalshöllinni í gær. Jóhann hljóp á frábærum tíma, 6,96 sekúndum. Tími Jóhanns Björns er sá besti sem Íslendingur hefur náð á vegalengdinni síðan í febrúar 2009.

Í öðru sæti varð breski hlauparinn Daniel Gardiner á sama tíma, og í 3. sæti varð Kolbeinn Höður Gunnarsson UFA á 7,03 sek.

Fleiri Skagfirðingar kepptu á mótinu og stóðu sig vel.Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir varð í 2. sæti í hástökki, og Guðjón Ingimundarson og Ísak Óli Traustason urðu í 2. og 3. sæti sæti í 60 metra grindahlaupi.

Fleiri fréttir