Gleði og fjör hjá Skólakór Árskóla

Skólakór Árskóla lauk starfsemi skólaársins í gær með mikilli gleði og fjöri.  Krakkarnir mættu í Tónlistarskólann um klukkan fjögur þar sem snædd var pizza og farið var í leiki.  Klukkan sex komu foreldrar og aðstandendur krakkanna og hlustuðu á þau syngja nokkur lög.

Meðal annars flutti kórinn ABBA lagið I have a dream með íslenskum texta eftir Gunnar Rögnvaldsson.  Sönghópur unglingastigs Árskóla hefur einnig verið starfræktur í vetur og mun hópurinn koma fram á skólastlitum unglingastigs Árskóla.

Kórinn er nú að ljúka sínu þriðja starfsári og hefur verið nóg um að vera í vetur.  Stjórnandi kórsins er Íris Baldvinsdóttir og undirleikari Tomas R Higgerson.

/íb

Fleiri fréttir