Gleðiganga Árskóla - myndir

Gleðiganga Árskóla fór af stað klukkan tíu í morgun í blíðskapar veðri. Gengu nemendurnir ásamt kennurum og öðru starfsfólki skólans frá grunnskólanum, upp á sjúkrahús og þaðan eftir Skagfirðingabrautinni og enduðu í barnaskólanum. Þegar þangað var komið biðu þeirra grillaðar pylsur og ávaxtasvalar. Skólahópurinn úr Ársölum tók þátt í skrúðgöngunni. Það voru margir sem mættu í búningum og með andlitsmálningu í tilefni dagsins.

.

Fleiri fréttir