Gleðilegt ár!
Feykir óskar lesendum sínum, viðmælendum, velunnurum og landsmönnum öllum gleðilegs og gæfuríks nýs árs og þakkar samstarfið á árinu sem er að líða. Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá áramótabrennunni og glæsilegri flugeldasýningu björgunarsveitarinnar Skagfirðingasveitar á Sauðárkróki í kvöld.
Mikill fjöldi fólks safnaðist saman til að fylgjast með sýningunni sem hófst kl. 21:00 en kveikt hafði verið í stórum bálkesti hálfri klukkustund fyrr og úr varð stórt og myndarlegt bál.