Góð aðsókn á Landsmót
Aðsókn að Landsmóti hestamanna á Vindheimamelum hefur gengið vonum framar að sögn Önnu Lilju Pétursdóttur sem sér um miðasölu Landsmótsins en hún segir að þessa fyrstu daga sé aðsóknin betri en búist var við og líklega ekki fyrr svo margir mættir þetta snemma móts. -Við erum í skýjunum yfir aðsókn að fyrstu dögunum og vel yfir fjögur þúsund miðar þegar seldir.
-Veðrið er ekki að hjálpa okkur núna en það á að batna þannig að við erum bjartsýn með framhaldið. Það eru allir vel undirbúnir og eru klæddir eftir veðri, lopapeysa og teppi í brekkunni, segir Anna Lilja telur greinilegt að fólk hafi hungrað eftir að geta lagst í brekkuna eftir þriggja ára bið eftir Landsmóti.
Nú er í fyrsta skipti boðið upp á netsjónvarp þar sem sýnt er frá báðum keppnisvöllum og fólk getur keypt sér aðgang að og segir Anna Lilja það hafa gengið vel. –Þetta hefur fengið frábærar viðtökur og fólki gengur vel að læra á þetta en nokkur hundruð manns hefur keypt sér aðgang.
Anna Lilja býst við að á fimmtudag fari gestir að streyma á svæðið og á laugardagsmorgni verði mannfjöldinn mestur þegar úrslitakeppninrnar fara af stað. Þá verða allir markaðsbásarnir komnir í fullan rekstur og veitingaaðilar og sem mest um að vera.
Anna Lilja segir tjaldbúa vera káta þrátt fyrir að ekki sé hlýtt í lofti og í gærkvöldi hafði fólk búið sér til skjólveggi með því að leggja bílum, rútum og hestakerrum þegar það grillaði kvöldmatinn. –Fólkið er svo glatt að vera komið á mótið að það lætur veðrið ekki hafa áhrif á sig. Það var mjög gleðilegt að sjá hvernig það sameinaðist í götunum og engin örvænting vegna veðursins.
Anna Lilja vildi gjarna sjá fleiri heimamenn á svæðinu þá einnig til að kynna það fyrir þeim sem ekki hafa komið lengi en svæðið er orðið allt hið glæsilegasta og ekki endilega bundið við hestamannamót. Þarna er allt til alls vatn, rafmagn og ljósleiðari og því möguleikarnir miklir á alskyns viðburðum.